Um velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis

Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauði krossinn við Eyjafjörð hafa frá árinu 2013 haft samstarf um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Fyrir jólin 2023 barst metfjöldi umsókna og með góðum stuðningi frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum var hægt að styðja við þau heimili sem þurftu hjálp.

Mikil ánægja hefur verið með samstarfið í tengslum við jólaaðstoðina og því var ákveðið að útvíkka starfsemina og stofna Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu sem sér um velferðaraðstoð á ársgrundvelli. Með þessari breytingu er vonast til að einfaldara verði að leita sér aðstoðar allan ársins hring og að betur sé hægt að halda utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæði sjóðsins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur.

Styrkja sjóðinn

 

Stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis:

  • Fyrir hönd Hjálpræðishersins: Herdís Helgadóttir, varamaður Lárus Óskar Sigmundsson.
  • Fyrir hönd Rauða krossins: Kristín Björk Gunnarssdóttir, varamaður Baldvin Valdemarsson.
  • Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar: Snjólaug Ósk Aðalsteinsdóttir, varamaður Sumarrós H. Ragnarsdóttir.
  • Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar: Kristbjörg Sigurðardóttir, varamaður Guðmundur Guðmundsson.