Takk fyrir stuðninginn

Stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis sendir kærar þakkir til allra þeirra fjölmörgu einstaklinga, fyrirtækja og samtaka sem styrktu sjóðinn fyrir jólin. Söfnunin gekk vel, sem gerir það mögulegt að styðja efnaminni fjölskyldur og einstaklinga hér á svæðinu bæði fyrir jólin og á öðrum tíma árs.

Velferðarstjarnan seldist vel og við þökkum samstarfsaðilum okkar, Glerártorgi, Slippnum og Lindex. 

Sérstaklega er ánægjulegt að segja frá því að framlög frá einstaklingum hafa stóraukist og þar sannar það sig að margt smátt gerir eitt stórt!

Takk fyrir stuðninginn - án ykkar væri þetta ekki mögulegt!